Fréttir

31.8.2013

Breyttur fundarstaður 2. september

Næsti reglulegur fundur hjá Rótarýklúbbnum Reykjavík-Miðborg verður mánudaginn 2. september 2013. Að þessu sinni verður fundurinn á Icelandair hótel Reykjavík Natura (Hótel Loftleiðum). Fundurinn hefst á venjulegum tíma kl. 12.15. Á fundinum mun Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels fjalla um uppbyggingu hótelreksturs Icelandair Group og uppbyggingu á ferðaþjónustu á Íslandi.