Fréttir

8.8.2013

Klúbbstarf hefst á ný að loknu sumarfríi

Fyrsti fundur í Rótarýklúbbnum Reykjavík-Miðborg að loknu sumarfríi verður mánudaginn 12. ágúst 2013. Hann hefst kl. 12.15. Fundurinn verður haldinn á reglulegum fundarstað klúbbsins á veitingahúsinu Nauthóli við rætur Öskjuhlíðar. Á fundinum mun Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar ræða um ástand fiskistofna.