Fréttir

29.4.2013

Nýr klúbbfélagi

Á fundi í Rótarýklúbbnum Reykjavík-Miðborg 29. apríl 2013 var Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu tekinn í klúbbinn.RRM 29-4-2013

Pétur Magnússon er fæddur 1971. Hann lauk kandídatsprófi í lyfjafræði frá Háskóla Íslands 1998. Hann lauk MBA-prófi frá Háskólanum í Reykjavík 2004 með sérstakri áherslu á mannauðsstjórnun. 

Pétur starfaði við markaðssetningu lyfja hjá Lyfjaverslun Íslands og dótturfyritæki þess, Ísfarm, að loknu lyfjfræðinámi. Áður en hann tók við starfi forstjóra Hrafnistu í nóvember 2007 starfaði hann sem yfirmaður lyfjafyrirtækisins Merck Sharp & Dohme á Íslandi.

 

Pétur hefur verið virkur í félagsmálum. Meðal annars hefur hann gegnt trúnaðarstörfum fyrir Íþrótta- og ólympíusamband Íslands og Lyfjafræðingafélag Íslands.

 

Pétur er kvæntur Ingibjörgu E. Ingimarsdóttur, hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvo syni.