Fréttir

1.7.2012

Borgin kvödd, Nauthóli heilsað

NauthóllRótarýklúbburinn Reykjavík-Miðborg flytur sig um set, af Hótel Borg og á veitingastaðinn Nauthól.

 

Rótarýklúbburinn Reykjavík-Miðborg hefur lengst af haldið fundi sína á Hótel Borg. Nú verður breyting þar á. Framvegis verða fundir klúbbsins á veitingastaðnum Nauthóli við Nauthólsvík við rætur Öskjuhlíðar. Þangað er greið leið og nóg af ókeypis bílastæðum en klúbbfélagar og gestir hafa iðulega nefnt bílastæði sem einn af ókostunum við fundarstað í Kvosinni. Fyrsti fundurinn á nýjum fundarstað er stjórnarskiptafundurinn 2. júlí 2012.

 

Fundartími Miðborgarklúbbsins breytist ekki þótt fundarstaðurinn breytist. Fundir verða áfram á mánudögum kl. 12.15.