Fréttir

29.11.2011

Jólafundur 5. desember

Jólafundur Rótarýklúbbsins Reykjavík-Miðborg verður haldinn mánudaginn 5. desember. Fundurinn verður í Þjóðleikhúskjallaranum og hefst kl. 19.00.

Á fundinum verður boðið upp á jólahlaðborð auk hátíðardagskrár. Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason les upp úr bók sinni Kona við 1000 gráður. Þá munu Kjartan Valdemarsson, Valgerður Guðnadóttir og Þór Breiðfjörð flytja lög úr söngleiknum Vesalingunum. Verðið er 5.400 kr. Thomas Möller í skemmtinefnd klúbbsins tekur við borðapöntunum (thomas@rymi.is).