Fréttir

22.11.2011

Heimsókn til Héraðsdóms Reykjaness

Rótarýklúbburinn Reykjavík-Miðborg hélt reglulegan fund sinn 21. nóvember 2011 í Héraðsdómi Reykjaness. Fundur 21-11-2011 1

Ástríður Grímsdóttir, héraðsdómari og klúbbfélagi greindi frá starfsemi dómstólsins og sýndi klúbbfélögum húsnæðið, þ.á m. dómsalina þrjá. Hún stýrði þinghaldi þar sem réttað var yfir manni sem leikinn var af Finni Sveinbjörnssyni. Hann var ákærður fyrir að hafa brotið rúðu við útidyr dómstólsins. Lára V. Júlíusdóttir hrl. lék sækjandann, Dögg Pálsdóttir hrl. verjandann og Inga Jóna Þórðardóttir lék vitni sem kallað var fyrir dóminn. Fundur 21-11-2011 2Fundur 21-11-2011 3Fundur 21-11-2011 4