Fréttir
Fundur á Nauthóli
Fundur Rótarýklúbbsins Reykjavík-Miðborg í dag var haldinn á veitingahúsinu Nauthóli við Nauthólsvík. Gestur fundarins var Benedikt Hjartarson, bakari og ermarsundskappi.
Í erindi sínu greindi Benedikt frá þreksundi sínu yfir Ermasund í júlí 2008. Sundið tók sextán klukkustundir og eina mínútu og synti hann um 60 kílómetra. Benedikt er fyrsti Íslendingurinn sem syndir yfir Ermasund og sá 781. í heiminum