Fréttir

3.10.2011

Heimsókn umdæmisstjóra

Tryggvi Pálsson, umdæmisstjóri íslenska rótarýumdæmisins heimsótti Rótarýklúbbinn Reykjavík-Miðborg 12. september 2011. Með honum var eiginkona hans Rannveig Gunnarsdóttir en hún er félagi í klúbbnum.

 

Í ávarpi sínum vék Tryggvi að helstu áherslum í störfum íslenska umdæmisins í forsetatíð hans. Jafnframt fór hann yfir helstu áskoranir sem rótarýhreyfingin um heim allan stendur frammi fyrir.