Fréttir

27.6.2011

Heimsókn í Hörpu

Fundur dagsins hjá Rótarýklúbbnum Reykjavík-Miðborg var haldinn í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu. Klúbbfélaginn Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður Ago sem er rekstrarfélag tónlistar- og ráðstefnuhússins tók á móti klúbbfélögum og gestum. Hún leiddi hópinn um sýningarrými hússins, fundarherbergi og salina Eldborg, Kaldalón, Norðurljós og Silfurberg.