Fréttir

18.5.2011

Lagabreytingar

Á klúbbfundi 16. maí 2011 voru samþykkt ný lög fyrir Rótarýklúbbinn Reykjavík-Miðborg. Fyrstu lög klúbbsins voru samþykkt á klúbbfundi 30. maí 1994. Nýju lögin endurspegla m.a. breytingar sem samþykktar voru á löggjafarþingi Rotary International 2010. Með nýju lögunum voru hin eldri felld úr gildi. Lög klúbbsins eru í tveimur hlutum. Í fyrsta lagi grundvallarlög (e. constitution) eru eins fyrir alla rótarýklúbba í heiminum ef undan er skilið nafn klúbbs og starfssvæði. Í öðru lagi sérlög (e. by-laws) sem taka mið af aðstæðum og sérsjónarmiðum hvers klúbbs innan þess ramma sem grundvallarlögin og reglur Rotary International setja.

 

Nýju lögin eru vistuð á heimasíðu klúbbsins undir Lög klúbbsins o.fl.