Fréttir

1.11.2010

Nýr klúbbfélagi

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda var í dag tekinn í klúbbinn. Almar er hagfræðingur frá Háskóla Íslands 1997 og MBA frá London Business School 2005. Hann gegndi ýmsum störfum hjá Íslandsbanka, Glitni og FBA 1997-2008. Hann tók við núverandi starfi 2009.PB010113

 

Almar er kvæntur Guðrúnu Zoéga og eiga þau fjögur börn. Fjölskyldan býr í Garðabæ. Loks skal nefnt að Almar er formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar.