Fréttir

11.10.2010

Heimsókn til SS

Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands (SS) og einn klúbbfélaga, hélt starfsgreinaerindi á fundi klúbbsins 11. október 2010 í höfuðstöðvum SS að Fosshálsi í Reykjavík. SS er eitt af elstu starfandi félögum landsins, stofnað 1907. Steinþór fór yfir helstu þætti í starfsemi félagsins og umtalsverðar áherslubreytingar í áranna rás.Steinþór Skúlason