Fréttir

13.9.2010

Heimsókn umdæmisstjóra

Margrét Friðriksdóttir, umdæmisstjóri Rótarýumdæmisins á Íslandi heimsótti klúbbinn 13. september 2010. Með henni í för var eiginmaður hennar Eyvindur Albertsson. Þetta er níunda klúbbheimsókn Margrétar. P9130086

 

Á fundinum afhenti Margrét klúbbnum fána núverandi alþjóðaforseta, Ray Klinginsmith. Þá afhenti hún Finni Sveinbjörnssyni, forseta klúbbsins hið alþjóðlega barmmerki starfsársins.

 

Í erindi sínu á fundinum rifjaði Margrét upp ýmislegt í starfi alþjóðahreyfingarinnar og íslenska umdæmisins. Þá fór hún yfir áherslur núverandi alþjóðaforseta sem og þau atriði sem hún sjálf leggur áherslu á á yfirstandandi starfsári. P9130088