Fréttir

5.7.2010

Oddrún heiðruð með Paul Harris

Paul HarrisOddrún Kristjánsdóttir hlaut í dag Paul Harris viðurkenningu fyrir störf sín í þágu klúbbsins. Oddrún var einn af stofnfélögum klúbbsins, ritari starfsárið 2001-2002, viðtakandi forseti 2006-2007 og forseti 2007-2008. Hún hefur setið í fjölmörgum nefndum innan klúbbsins og á vegum Rótarýumdæmisins og verið boðin og búin að leiðbeina og aðstoða eftir því sem leitað hefur verið til hennar. Á myndinni sést Margrét Guðmundsdóttir, fráfarandi forseti klúbbsins afhenda Oddrúnu viðurkenninguna.