Saga klúbbsins

Tuttugu árum fagnað

Rótarýklúbbur Mosfellssveitar var stofnaður 17. mars 1981. Stofnfélagar voru 22 og eru 10 þeirra ennþá í klúbbnum í dag.

Nýr klúbbur fæðist.

Aðdragandinn að stofnun klúbbs okkar var sá að Jón Jóhannsson hafði verið búsettur í Ólafsvík og verið rótarýfélagi þar. Hann var fluttur í Mosfellssveit og hóf að kanna hvort þar væri starfandi rótarýklúbbur.

Jón Gunnlaugsson, félagi í Rótarýklúbbi Seltjarnarness, sem var þá umdæmisstjóri, greip hugmyndina og gengust klúbbfélagar hans fyrir stofnun klúbbs okkar á 10 ára afmælisári sínu. Er Rótarýklúbbur Seltjarnarness því móðurklúbbur okkar.

Félagar í Rótarýklúbbi Seltjarnarness reyndust okkur mjög vel og tóku virkan þátt í uppeldi afsprengisins. Fræddu þeir okkur um Rótarýhreyfinguna og ýmis önnur mál og voru ólatir við að mæta á fundi hjá okkur og halda þar erindi. Hefur verið gott samband milli klúbbanna síðan.

Þegar klúbburinn var stofnaður var meðalaldur félaga innan við fjörutíu ár og taldist lágur.

Mannbætandi starf.

Það hefur á margan hátt verið þroskandi og gefandi að vera félagi í rótarýklúbbi.

Samskiptin við félagana á fundum og ekki síður við ýmis önnur tækifæri hafa eflt vináttu sem er og verða mun öllum félögum dýrmæt er fram líða stundir.

Eru endurminningar frá samverustundum hinn dýrmæti fjársjóður sem hægt er að ganga í er kemur fram á ævina.

Á fundum okkar sem eru haldnir einu sinni í viku eru yfirleitt fyrirlesarar sem hafa flutt fræðandi erindi um alla skapaða hluti. Höfum við félagarnir oft komið margs vísari heim af klúbbfundum og öðlast aukinn skilning á störfum annarra en eitt af markmiðum rótarý er að efla skilning og vináttu manna á milli og ekki síst efla skilning og virðingu fyrir störfum hver annars, m.a. þess vegna halda félagarnir í klúbbi sínum erindi um starfsgrein sína.

Rótarýlundurinn.

Rótarýklúbburinn okkar fékk stóra spildu ofan við kjúklingabúið að Teigi til trjáræktar árið 1990. Þar höfum við plantað út alls konar trjám og runnum á hverju ári. Á vorin er mætt í rótarýlundinn og þar tekið til hendinni.

Gróðursettar eru nýjarplöntur, borið er á og klipptar til þær plöntur sem hafa aflagast eftir vetrarveðrin.

Fjölskylduvænt verkefni.

Þetta er hin besta skemmtun. Við höfum maka, börn og aðra fjölskyldumeðlimi með okkur. Allir hjálpast að við að bera áburð á plönturnar, hreinsa grasið frá nýgræðingnum og dreifa plöntum til þeirra sem best handleika skóflurnar.

Grillveislur í gróðrinum.

Á þessum 10 árum sem landið er búið að vera í umsjá Rótarýklúbbs Mosfellssveitar hefur verið gaman að sjá árangurinn sem birtist okkur í hvert sinn sem við förum þar um. Þessar ferðir okkar í lundinn eru ógleymanlegar. Þær enda alltaf með grillveislu og skemmtilegum uppákomum.

Áhugi á skógrækt.

Fullyrða má að íbúar Mosfellsbæjar hafi verið ötulir að planta trjám í sitt heimaland. Víða í hlíðum byggðarinnar eru fallegar hríslur að stinga sér upp sem duglegt fólk og áhugasamur garðyrkjustjóri hafa unnið að. Það er göfugt starf. Við ætlum líka að vera dugleg að fylla lundinn okkar að trjám og runnagróðri.

Ábatasöm iðja.

Hægt er að segja að plönturnar vaxi þó við séum lögst til hvílu. Svo málið er að vera duglegur að planta þó hríslan sé ekki stór í upphafi, hún stækkar, vertu viss!