Lög klúbbsins
Sérlög Rótarýklúbbs Akraness, stofnaður 29. nóvember 1947.
Sérlög Rótarýklúbbs Akraness
1. kafli Nafn og starfssvæði
1. gr.
Nafn klúbbsins er Rótarýklúbbur Akraness. Starfssvæði hans er Akranes og nágrannabyggðarlög.
2. kafli Stjórn
2. gr.
Stjórn klúbbsins skipa sex félagar: Forseti, fráfarandi forseti, ritari, gjaldkeri, stallari og viðtakandi forseti.
Viðtakandi forseti, ritari, gjaldkeri og stallari eru kjörnir til eins árs. Skal hver stjórnarmaður kosinn sérstaklega, í þeirri röð sem að framan greinir.
Við stjórnarkjör er viðtakandi forseti sjálfkjörinn í embætti forseta og forseti sjálfkjörinn í embætti fráfarandi forseta. Þessir tveir hafa því ekki kjörgengi í önnur embætti í stjórn klúbbsins.
Um tilhögun á kjöri stjórnar fer samkvæmt nánari fyrirmælum í 3. gr.
3. gr.
Á fundi í nóvembermánuði er óskað eftir tilnefningu félaga til stjórnarkjörs. Tilnefning skal vera skrifleg. Hver félagi má tilnefna einn félaga i hvert embætti.
Stjórnin athugar allar tilnefningar og tilkynnir á næsta fundi hverjir þrír félagar hafa hlotið flestar tilnefningar í hvert embætti og verða þeir í kjöri. Ef tveir eða fleiri eru jafnir í þriðja sæti skal hlutkesti ráða um hver hlýtur það sæti og verður í kjöri.
Stjórnarkjör fer fram á fyrsta reglulegum klúbbfundi í desember. Eru þrír í kjöri í hvert embætti og skal kosning vera skrifleg. Sá er kosinn, er þá hlýtur flest atkvæði. Verði atkvæði jöfn skal kjósa bundinni kosningu um þá tvo er flest atkvæði fengu. Ef þrír hafa hlotið jöfn atkvæði, ræður hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Ef þeir hljóta báðir jafna atkvæðatölu skal hlutkesti ráða. Ef aðeins eru tilnefndir tveir félagar í embætti, er kosið um þá og hlutkesti látið ráða ef atkvæði falla jöfn. Ef einungis einn er tilnefndur í embætti telst hann sjálfkjörinn.
4. gr.
Á sama fundi sem stjórn er kosin skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga fyrir næsta starfsár og einn til vara, eftir tillögu forseta.
5. gr.
Ný stjórn tekur við störfum á fyrsta klúbbfundi í júlímánuði. Stjórnin skal í byrjun hvers starfsárs semja fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár og leggja hana fyrir félagsfund til samþykktar eigi síðar en á síðasta fundi í ágúst. Gjöld klúbbsins mega ekki fara fram úr þeirri áætlun nema samþykki félagsfundar komi til.
6. gr.
Í forföllum aðalmanns sinnir fyrirrennari aðalmanns starfinu og sé hann ekki heldur til taks, tekur sá sem gegndi embættinu þar á undan við og þannig koll af kolli.
Forfallist stjórnarmaður varanlega á kjörtímabilinu skal, svo fljótt sem auðið er, nýr maður kjörinn til að gegna embætti hans til loka starfsársins.
7. gr.
Stjórnin fer fyrir klúbbnum og er ákvörðun hennar endanleg í öllum klúbbmálum. Slíkri ákvörðun má vísa til klúbbfundar. Sé ákvörðun vísað til klúbbfundar fellur hún því aðeins úr gildi að tveir þriðju hlutar félaga á fundinum séu henni mótfallnir og meirihluti klúbbfélaga sé mættur á fundinum enda hafi ritari klúbbsins tilkynnt félögum um málavöxtu a.m.k. 5 dögum fyrir fundinn. Niðurstaða fundarins er endanleg.
3. kafli Skyldur embættismanna
8. gr.
Forseti stjórnar fundum klúbbsins og stjórnarfundum. Hann er málsvari klúbbsins og gegnir öðrum skyldum forseta samkvæmt lögum og venjum.
Fráfarandi forseti gegnir skyldum forseta í forföllum hans og sé hann einnig forfallaður gegnir næsti forseti þar á undan embætti og svo fyrri forsetar hver af öðrum.
9. gr.
Viðtakandi forseti er kjörinn, sbr. ákvæði 2. og 3. gr., a.m.k. einu og hálfu ári áður en hann tekur við embætti forseta og á sæti í stjórn starfsárið áður en hann tekur við starfi hans. Verkefni hans í þeirri stjórn er að hefja undirbúning að því starfsári að höfðu samráði við forseta og verðandi stjórnarmenn sem kjörnir verða til að sitja í stjórn með honum.
10. gr.
Ritari annast allar bréfaskriftir, heldur félagaskrá, gjörðabók fyrir klúbbfundi og stjórnarfundi og sér um að gerð sé skýrsla um fundarsókn einstakra félaga. Hann gefur út staðfestingu um mætingu félaga úr öðrum Rótarýklúbbum á fundum klúbbsins.
Fundargerð skal borin undir félagsmenn á klúbbfundi við fyrstu hentugleika. Heimilt er félögum að fá bætt um ef þeim þykir ónákvæmt eða rangt bókað, eða eitthvað hafa niður fallið í bókun, er þeim þykir miklu skipta.
Ritari sendir skýrslur til Rotary International og umdæmisskrifstofu í samræmi við reglur og starfshætti alþjóðahreyfingarinnar og íslenska Rótarýumdæmisins.
Að öðru leyti innir ritari af hendi þau störf sem forseti klúbbsins felur honum.
11. gr.
Gjaldkeri innheimtir félagsgjöld og sér um aðrar fjárreiður klúbbsins. Hann greiðir alla reikninga sem forseti áritar. Skal hann við lok starfsársins semja yfirlit um tekjur og gjöld klúbbsins á starfsárinu og yfir eignir og skuldir. Skal reikningsyfirlit þetta, áritað af stjórn og skoðunarmönnum reikninga, lagt fram til afgreiðslu eigi síðar en á síðasta fundi í ágústmánuði. Ennfremur skal gert bráðabirgðayfirlit um hag klúbbsins hvenær sem þess er óskað af stjórn klúbbsins.
Reikningsárið er frá 1. júlí til 30. júní.
Sjóði klúbbsins skal geyma í bankastofnun á Akranesi.
Að öðru leyti skal gjaldkeri leysa af hendi öll þau störf sem samkvæmt lögum og venjum varða embætti hans eða forseti felur honum.
12. gr.
Stallari sér um, að vel sé búið að félögum á fundum og tekur á móti gestum. Hann framkvæmir öll þau störf er slíku embætti fylgja og forseti felur honum. Hann skal og fylgjast með og koma á framfæri kvörtunum og kröfum um úrbætur, ef ástæða þykir til.
4. kafli Fundir
13. gr.
Reglulega fundi klúbbsins skal halda á hverjum miðvikudegi kl. 18:30 til 20:00. Þó getur stjórn klúbbsins, þegar nauðsyn krefur eða gildar ástæður eru til, fært reglulegan fund til annars dags í sömu viku eða annars tíma á hinum venjulega degi, eða jafnvel fellt niður venjulegan vikufund. Slíkar breytingar skal tilkynna öllum félögum í tæka tíð.
14. gr.
Aðalfund klúbbsins skal halda í júlí eða ágúst ár hvert. Fráfarandi forseti flytur þá ársskýrslu og gjaldkeri leggur fram til samþykktar endurskoðaðan ársreikning og efnahagsreikning. Eitt eintak af reikningum og ársskýrslu skal varðveita í skjalasafni klúbbsins. Helstu atriða úr skýrslu stjórnar og ársreikningum skal getið í gjörðabók.
15. gr.
Allir klúbbfundir eru ályktunarfærir í öllum málum þegar meirihluti félaga er á fundi. Meirihluti atkvæða ræður í öllum málum nema annað sé ákveðið í lögum klúbbsins. (Sjá 7. gr. og 31. gr.)
16. gr.
Halda skal stjórnarfund ef forseti eða tveir aðrir stjórnarmenn óska þess.
17. gr.
Stjórnarfundir eru ályktunarfærir ef þrír eru á fundi. Afl atkvæða ræður úrslitum. Atkvæði forseta sker úr, ef atkvæði eru jöfn.
5. kafli
Klúbbgjöld
18. gr.
Um leið og klúbbstjórn leggur fram fjárhagsáætlun í byrjun starfsárs (sbr. 5. gr.) skal hún gera tillögur um árgjald klúbbfélaga. Stjórn skal einnig ákvarða innheimtu matargjalds.
6. kafli
Rótarýsjóðurinn
19. gr.
Árleg framlög til Rótarýsjóðsins (Rotary Foundation) skulu vera annars vegar úr félagssjóði samkvæmt ákvörðun í fjárhagsáætlun en að öðru leyti frjáls framlög klúbbfélaga, annarra einstaklinga og fyrirtækja. Enn fremur má hvetja til aukinna framlaga til sjóðsins með heillakveðjum, minningargjöfum og öðrum aðgerðum.
7. kafli
Nefndir
20. gr.
Viðtakandi forseti skal í samráði við meðstjórnendur sína skipa eftirtaldar fjórar þjónustunefndir fyrir komandi starfsár: Klúbbþjónustunefnd, starfsgreinanefnd, þjóðmálanefnd, alþjóðanefnd.
Á sama hátt skal hann skipa skemmtinefnd við upphaf starfsárs. Aðrar nefndir skipar viðtakandi forseti með samþykki stjórnar sinnar eftir því sem tilefni eru til.
Heimilt er að sameina tvær nefndir í eina.
21. gr.
Helstu skyldur þjónustunefnda þeirra, er um ræðir í 20. gr., eru sem hér segir:
Klúbbþjónustunefnd skal sjá um að klúbbfélagar veiti fræðslu um starfsgrein sína til þess að félagarnir fái skilið starf hvers annars, svo og þjónustuhlutverk það, sem hver um sig gegnir í þjóðfélaginu á hverjum tíma.
Starfsgreinanefnd heldur við skrá um starfsgreinar á starfssvæði klúbbsins sem talið er rétt að geti átt fulltrúa í klúbbnum svo og hverjar eigi þar fulltrúa þegar. Ef mikilsverðar starfsgreinar eiga ekki fulltrúa í klúbbnum skal nefndin benda stjórn og félögum á mikilvægi þess að fulltrúar fáist í þær.
Þjóðmálanefnd sér um að helstu mál bæjarfélagsins og þjóðfélagsins verði jafnan kynnt félögunum á fundum og leiðbeina eftir föngum um það á hvern hátt félagar geta best lagt málum þessum lið.
Alþjóðanefnd sér um fræðslu um viðhorf Rótarý til alþjóðamála og á hvern hátt Rótarýfélagsskapurinn og félagar geta best stuðlað að og eflt velvild og gagnkvæman skilning þjóða á milli. Nefndin veitir erlendum Rótarýfélögum fyrirgreiðslu og formaður hennar skal, ásamt stallara, taka á móti erlendum gestum.
22. gr.
Nefndir skulu starfa eftir þeim reglum og leiðbeiningum sem Rotary International setur eða lætur í té og samkvæmt því er forseti klúbbsins mælir fyrir um. Formaður hverrar nefndar stjórnar nefndarfundum og annast um framkvæmdir í þeim málum er nefndina varða.
8. kafli
Mætingarskylda
23. gr.
Félagi skal sækja reglulega fundi í klúbbnum.
Það telst einnig fundarsókn ef Rótarýfélagi:
1. Sækir fund í öðrum klúbbi;
2. Sækir fund í félagsskap á vegum Rótarý (t.d. Rotaract og Interact);
3. Sækir allsherjarþing Rotary International eða aðrar gildar samkomur á vegum Rotary International eða umdæmisins eða annarra umdæma, svo sem umdæmisþing, formót, svæðismót, svo og nefndarfundi á vegum umdæmisins;
4. Mætir á réttum tíma á fundarstað annars klúbbs þótt sá klúbbur hafi fellt niður fundinn;
5. Er viðstaddur og tekur þátt í klúbbþjónustuverkefni eða samfélagsviðburði sem klúbburinn stendur að eða fundi sem stjórnin hefur heimilað;
6. Er viðstaddur stjórnarfund klúbbsins eða fund í nefnd sem hann þjónar í á vegum klúbbsins.
Ef félagi starfar um lengri tíma fjarri eigin klúbbsvæði ber honum að mæta í klúbbi á því svæði sem hann er á. Að öðru leyti vísast til grundvallarlaga Rótarýklúbba um mætingarskyldu og mætingarígildi.
9. kafli
Undanþága frá fundarsókn
24. gr.
Félagi getur fengið undanþágu frá fundarsókn:
Ef fjarvistirnar samræmast þeim skilyrðum sem stjórnin setur. Stjórnin getur undanþegið félaga frá mætingarskyldu af ástæðum sem hún telur fullnægjandi.
Ef summa af aldri og félagsaðild félaga í einum eða fleiri Rótarýklúbbum er 85 ár eða meira og félaginn hefur óskað þess skriflega við ritara klúbbsins að vera undanþeginn mætingarskyldu og óskin hefur hlotið samþykki stjórnar.
10. kafli
Nýir félagar
25. gr.
Vilji félagi gera tillögu um val nýrrar starfsgreinar skal hann skýra forseta klúbbsins frá því. Forseti leggur tillöguna fyrir stjórn klúbbsins.
Að undangenginni framangreindri málsmeðferð tilkynnir ritari félögum tillögu stjórnarinnar um val nýs félaga. Hafi forseta eigi borist andmæli frá fleiri en tveim klúbbfélögum gegn tillögu stjórnarinnar innan 10 daga frá dagsetningu tilkynningarinnar skal hann bjóða þeim er hlut á að máli að gerast félagi í klúbbnum.
Nú flytur félagi í umdæmi klúbbsins, eða hefur starf þar, og hefur áður verið félagi í öðrum Rótarýklúbbi, skal þá stjórninni heimilt, að undangenginni venjulegri könnun um afstöðu félaga, að bjóða honum að verða félagi í klúbbnum og síðan að kynna hann sem nýjan félaga án venjubundinnar inntökuathafnar.
Enginn félagi má utan klúbbsins skýra frá neinu er varðar tilnefningu eða atkvæðagreiðslu um inntöku í klúbbinn.
11. kafli
Heiðursfélagar
26. gr.
Heimilt skal klúbbnum að kjósa heiðursfélaga. Nær heimild þessi til félaga eða utanfélagsmanns sem með starfi sínu hefur, að dómi klúbbfélaga, skarað fram úr með ágætri þjónustu við eflingu hugsjóna Rótarý. Um val heiðursfélaga, réttindi þeirra og skyldur vísast til grundvallarlaga Rótarýklúbba.
12. kafli
Slit félagsaðildar
27. gr.
Um slit félagsaðildar vegna úrsagnar, brottflutnings, vanrækslu á fundarsókn eða af öðrum ástæðum, svo og málsmeðferð þar að lútandi, vísast til grundvallarlaga Rótarýklúbba.
13. kafli
Ýmis ákvæði
28. gr.
Mál eða tillögur, sem fela í sér skuldbindingar fyrir klúbbinn, skulu ekki bornar fram á fundi fyrr en stjórn klúbbsins hefur fjallað um þær. Komi slík mál fyrir á klúbbfundi án vitundar stjórnarinnar skal umræðulaust vísa þeim til hennar. Að lokinni athugun skal stjórnin leggja málið fyrir klúbbfund og ræður þá meirihluti atkvæða úrslitum þess.
29. gr.
Samskota má ekki leita og hjálparbeiðnir má ekki bera fram í klúbbnum eða á vegum hans nema með samþykki stjórnarinnar.
30. gr.
Stjórn klúbbsins setur reglur um fundarsköp. Skal í þeim stefnt að því að gera fundina aðlaðandi og sem ánægjulegasta fyrir félaga og gesti.
14. kafli
Lagabreytingar
31. gr.
Tillögur um lagabreytingar skulu vera skriflegar, og skal stjórnin senda öllum félögum þær a.m.k. einni viku áður en þær koma til umræðu. Hafa skal tvær umræður um breytingarnar.
Lagabreytingar öðlast gildi ef meirihluti klúbbfélaga er mættur á fundi við seinni umræðu og þær samþykktar með a.m.k. tveim þriðju atkvæða viðstaddra félaga, enda séu þær í samræmi við grundvallarlög Rótarýklúbba og samþykktir Rotary International.
32. gr.
Lög þessi eru byggð á gildandi grundvallarlögum Rótarýklúbba og öðlast þegar gildi. Um leið falla úr gildi eldri lög klúbbsins.
Þessi sérlög Rotarýklúbbs Akraness voru samþykkt á fundi klúbbsins þann 20.maí 2009.