Fréttir

4.10.2017

Klúbbfundur 3. október 2017

Það er fastur liður hjá Rkl. Selfoss að halda klúbbfund fyrsta fund hvers mánaðar. Á klúbbfundum er farið yfir málefni klúbbsins og starfið framundan. Á þessum klúbbfundi var kynnt dagskráin framundan, nýrri félagaskrá dreift og þá var rætt um og skoðuð fyrsta útgáfa að kynningu klúbbsins sem sýnd verður nk. laugardag á Umdæmisþingi í Mosfellsbæ. En kynning þessi er boð Rkl. Selfoss til Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi á næsta umdæmisþing sem haldið verður á Selfossi 12. og 13. október 2018. Kynningarmyndbandið var unnið af þeim félögum Sigurði K. Kolbeinssyni og Magnúsi Hlyni Hreiðarssyni. Mætingin var afar góð og liðsandinn góður varðandi verkefnin framundan.