Fréttir

22.9.2017

Heimsókn til forseta

Þriðjudaginn 19. september sl. bauð forseti Rkl. Selfoss Ásta Stefánsdóttir ásamt eiginmanni sínum Aðalbirni Baldurssyni félögum í Rkl. Selfoss til fundar á heimili sínu. Ásta hvatti félaga sem ættu þess kost að mæta á umdæmisþingið í Mosfellssveit því gott væri að setja sig inn á aðstæður áður en klúbburinn héldi næsta umdæmisþing haustið 2018. Þá greindi hún frá dagskrá næstu funda og hvatti félaga til að starfsárið yrði skemmtilegt. Þá var boðið upp á veitingar að miklum myndarskap. Mæting var afar góð og þakkir til húsráðenda fyrir góðar móttökur.