Fréttir

6.6.2017

Grunnbúðir Everest - ferð til Nepal

Hjónin Íva Elíasdóttir (félagi í Rkl. Selfoss) og Grétar Einarsson ferðuðust til Nepal sl. vetur í hópi íslendinga undir stjórn þeirra bræðra Haraldar og Örvars Ólafssona. Íva og Grétar brugðu upp myndum úr ferðalaginu og sögðu skemmtilega frá því sem á daga þeirra dreif enda mikið ferðalag um stórbrotið umhverfi þar sem lítið má út af bregða m.a. vegna mikillar hæðar og fjarlægðar frá byggðu bóli.