Fréttir

21.12.2016

Jólafundur með söng og gleði

20. desember var haldinn jólafundur Rkl. Selfoss. Mökum félaga var boðið til samkomunnar og var vel mætt. Góður matur var á borðum og síðan sá Ingimar Pálsson félagi í Rkl. Selfoss um tónlistarflutning þar sem salurinn tók undir í almennum söng auk þess sem Petra Sigurðardóttir, Íva Elíasdóttir og Björn Rúriksson sáu um forsöng og einsöng í nokkrum lögum. Sérlega ánæguleg kvöldstund sem vert er að þakka fyrir.