Fréttir

18.5.2016

Lögreglustjórinn á Suðurlandi

Lögreglan á Suðurlandi var sameinuð í eitt embætti árið 2015.

Kjartan Þorkelsson, félagi í Rkl. Rangæinga, er lögreglustjóri á Suðurlandi og stýrir hinu nýja embætti. Kjartan greindi frá starfinu og þeim áskorunum sem við væri að glíma. Eitt helsta vandamálið sem við væri að glíma nú um stundir er aukninn ferðamannastraumur en fjárveitingar hafa ekki fylgt til að takast á við málið. Það bitnar því á annarri þjónustu s.s. við heimamenn. Fróðlegt erindi og upplýsandi.