Fréttir

11.11.2015

Borgarleikhúsið

Þorsteinn Ásmundsson kynnti starfsemi Borgarleikhússins og dagskrá leikársins

Þorsteinn Ásmundsson er flestum Selfyssingum að góðu kunnur enda bjó hann á Selfossi í rúma 2 áratugi og stundaði hér atvinnurekstur auk þess að koma víða við í félagsstarfsemi.

Þorsteinn hefur verið framkvæmdastjóri Borgarleikhússins sl. 13 ár og á fundi í Rkl. Selfoss 10. nóv kynnti hann starfsemi leikhússins og dagskrá vetrarins sem er bæði glæsileg og metnaðarfull.