Fréttir

16.9.2015

Umdæmisstjóri í heimsókn

Magnús B. Jónsson umdæmsstjóri Rótarý á Íslandi og eiginkona hans Steinnunn S. Ingólfsdóttur sóttu Rkl. Selfoss heim 15. sept.

Magnús B. Jónsson umdæmisstjóri ásamt eiginkonu sinni Steinunni S. Ingólfsdóttur heimsóttu Rkl. Selfoss þriðjudaginn 15. sept. Þessi heimsókn er hluti af heimsóknaráætlun umdæmisstjóra þar sem hann fundar með stjórn viðkomandi klúbbs.Þá flytur umdæmisstjóri  erindi á klúbbfundi um áherslur alþjóðaforseta Rótarý sem og hans eigin áherslur á starfsári sínu. Erindi Magnúsar var fróðlegt og í lokin afhenti Magnús, forseta Rkl. Selfoss, Ingimundi Sigurmundssyni fána starfsársins 2015-2016 og nældi merki ársins í hann um leið. Magnúsi og Steinunni var í lok fundar þakkað með góðu lófataki.