Fréttir

20.3.2012

Félagslíf ungs fólks í Menntaskólanum á Laugarvatni

Helgi Ármannsson stallari

Það voru fulltrúar frá Menntaskólanum að Laugarvatni sem enduðu unglingaþema febrúarmánaðar á vegum ungliðanefndar Rótarýklúbbs Selfoss. Til okkar komu, Helgi Ármannsson stallari nemendafélagsins og Guðmundur Snæbjörnsson. Þess má til gamans geta að tveir eldri bræður Helga hafa einnig gengt stallara embættinu hjá nemendafélaginu. Þeir félagar Helgi og Guðmundur lýstu félagslífi skólans í skemmtilegu máli og myndum, fóru yfir lög og reglur og einnig hvað væri framundan, en þar bar hæst sjálf árshátíðin. Í lokin svöruðu þeir fjölda fyrirspurna úr sal. Þarna voru feiknalega líflegir og skemmtilegir ungir menn á ferð og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna.     


Nemendafélag ML 28.2.2012Nemendafélag ML 28.2.2012Nemendafélag ML 28.2.2012Nemendafélag ML 28.2.2012Nemendafélag ML 28.2.2012Nemendafélag ML 28.2.2012Nemendafélag ML 28.2.2012