Fréttir

25.11.2015

Stjórnarkjör fyrir starfsárið 2016-2017

Stjórnarkjör fór fram í klúbbnum mánudaginn 23. nóvember. Kosin var stjórn fyrir næsta starfsár sem hefst 1. júlí 2016. Örn Gylfason var kjörinn verðandi forseti 2017-2018 en forseti klúbbsins á starfsárinu 2016 –2017 verður Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir, sem valin var til embættisins í kosningu fyrir ári, þá sem verðandi forseti.

 Eiríkur, Örn og Sigríður

Kosningin fór fram á grundvelli tilnefninga, sem fram komu á fyrri fundi. Kosið var á milli þeirra þriggja sem flestar tilnefningar höfðu hlotið í hvert embætti. Að lokinni leynilegri atkvæðagreiðslu og talningu í heyranda hljóði tilkynnti Sigríður Kr. Ingvarsdóttir, forseti klúbbsins, úrslitin. Þau urðu þessi: Viðar Ólafsson var kjörinn dagskrárstjóri, Einar Benjamínsson ritari, Eyrún Ingadóttir gjaldkeri og Jónbjörg Sigurjónsdóttir stallari.