Fréttir

4.4.2011

Ferð til Riga

RIGA-1-OverviewOfCityFélagar í Rótarýklúbbnum Reykjavík Breiðholt hafa farið nokkrar hópferðir erlendis.    Fyrsta ferðin var til Ítalíu, þar sem haldið var til í Bologna og ferðast þaðan um hið

fagra hérað Toscana.  Næst var haldi til St Pétursborgar og síðast var farið til Portúgal.   Haldið var til í Lissabon og ekið um nærsveitir.   Nú er stefnt að því að halda til Lettlands.    Um yrði að ræða ferð frá miðjum degi miðvikudags til sunnudagskvölds.   Riga yrði skoðuð og einnig myndum við heimsækja fyrirtæki sem er  í eigu Gámaþjónustunnar.    Þar myndum við nýta okkur að þekkja vel eigendur Gámaþjónustunnar og halda þar fyrirtækjafund !!      Dagsetningar eru ekki komnar, en stefnt er að því að fara í október og fyrstu áætlanir gera ráð fyrir að verðið á mann verði kr. 90 - 95 þúsund.