Ráðstefna haldin i Rangárþingi um orkumál
Haldin verður ráðstefna í Gunnarsholti þann 25. mars á vegum Rótaryklúbbs Ranæinga.
Yfirskrift ráðstefnunnar er Rangárþing - orkuríkasta hérað landsins?
Haldin verður ráðstefna í Gunnarsholti þann 25. mars á vegum Rótarýklúbbs Rangæinga. Yfirskrift ráðstefnunnar er Rangárþing - orkuríkasta hérað landsins? Tilefnið er niðurstaða faghópa Rammaáætlunar, sem birt var í mars, segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri og rótarýfélagi.
Tilefnið er niðurstaða faghópa Rammaáætlunar, sem birt var í mars, segir Sveinn Runólfsson lanðgræðslustjóri og Rótarýfélagi. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni er Guðmundur Ómar Friðleifsson jarðfræðingur en hann vann við kortlagningu jarðhita á Torfajökulsvæðinu í mörg ár sem og Hágöngusvæðinu og Vonarskarði. Guðmundur fjallar um þessi háhitasvaði í erindi sínu. Ég mun væntanlega segja frá hvernig þessi svæði eru og hver séu hin fagurfræðilegu og jarðhitalegu verðmæti sem falin eru i þessu svaði, hvort heldur i sérstöðu eða getu til orkuvinnslu," segir Guðmundur. Nú eru faghópar i rammaáætlun nýbúnir að skila sínum niðurstöðum og þar eru sjö undirsvæði í Torfajökli meðal annars gerð að einu svæði i niðurstöðum matsins. Guðmundur segir Torfajökulssvæðið vera talið eitt af öflugustu háhitasvæðum landsins. Umræðan kemur því inn á það hvaða möguleikar eru á nýtingu, en ef hinsvegar allt er friðað, hverju myndi þetta orkuríka hérað Rangárþing þá sjá á eftir? Ég hef áður reynt ad lýsa sérstöðu þessara svæða með tilliti til jarðhitans og vil fjalla um hvað hefur gríðarlegt verndargildi og hvað minna frá nýtingarsjónarmiði. Jafnvel benda á möguleika á hvernig nýting og nátturuvernd geta farið saman." Áhrif orkunýtingar Margir aðrir fyrirlestrar verða í boði á ráðstefnunni en meðal annars verður fjallað um áhrif orkunýtingar á nátturufar, ferðatjónustu og byggðaþróun og einnig verður kynning á háskólasamfélaginu í Gunnarsholti.
Dagkránin verður sett kl. 10.15 og lýkur kl. 15.45. Fundarstjóri verður Drífa Hjartardóttir. Ráðstefnan er öllum opin og er ókeypis. Dagskrána má nálgast hér.