Viðurkenning fyrir árangur í raungreinum
Guðfríður Daníelsdóttir
Við útskrift frá Menntaskólanum í Kópavogi föstudaginn 27. maí veitti klúbburinn að venju styrk fyrir bestan árangur í raungreinum á stúdentsprófi. Styrkinn hlaut að þessu sinni Guðfríður Daníelsdóttir. Kristófer Þorleifsson afhenti styrkinn fyrir hönd klúbbsins.
Klúbbnum barst eftirfarandi bréf frá skólameistara MK.
30. maí 2016
Rótarýklúbbur Kópavogs
Bryndís Hagan Torfadóttir, forseti
Fyrir hönd Menntaskólans í Kópavogi vil ég þakka
Rótarýklúbbi Kópavogs fyrir að veita Rótarý-styrk í
raungreinum við útskrift frá skólanum föstudaginn 27. maí sl.
Styrkinn hlaut að þessu sinni Guðfríður Daníelsdóttir sem
bestan árangur sýndi í raungreinum á stúdentsprófi vorið 2016.
Auka þarf hlut raungreina í íslenskum framhaldsskólum og
mikilvægt er að hvetja þá nemendur til dáða sem vel standa sig.
Rótarýklúbbur Kópavogs hefur lagt sitt af mörkum til
hvatningar náms í raungreinum með glæsilegri styrkveitingu. Þá
sýnir klúbburinn Menntaskólanum í Kópavogi virðingu og hlýhug
með þessu framlagi.
Rótaryfélagar í Rótarýklúbbi Kópavogs hafið heila þökk fyrir.
Margrét Friðriksdóttir
skólameistari