Fréttir

18.12.2015

Viðurkenning frá klúbbnum við útskrift frá Menntaskólanum í Kópavogi.

Einar Ólafur Einarsson

Að venju veitti klúbburinn viðurkenningu fyrir bestan árangur í raungreinum á jólaprófi 2015. Gjaldkeri klúbbsins, Margrét Sigurðardóttir, afhenti Einari Ólafi Einarssyni, nema á náttúrufræðibraut. viðurkenningarskjal og peningaupphæð.


Föstudaginn 18. desember 2015 var útskriftarhátíð Menntaskólans í Kópavogi haldin í Digraneskirkju. Við það tækifæri afhenti Margrét Sigurðardóttir, gjaldkeri klúbbsins, Einari Ólafi Einarssyni, nýstúdent, viðurkenningu Rótarýklúbbs Kópavogs fyrir bestan árangur í raungreinum.


Á myndinni má sjá Margréi með Einari Ólafi, en auk viðurkenningarskjals afhenti Margrét honum kr. 60.000 frá klúbbnum.