Vilmundur Guðnason Eldhugi Kópavogs 2015
Rótarýfundurinn 24. febrúar var í umsjón Viðurkenningarnefndar. Formaður er Sveinn Hjörtur Hjartarson. Dr. Vilmundur Guðnason prófessor, forstöðumaður Rannsóknastöðvar Hjartaverndar, var tilnefndur Eldhugi Kópaovgs 2015. Þriggja mín erindi flutti Kristinn Dagur Gissurarson.
3ja mín erindi flutti Kristinn D Gissurarson. – Kristinn kom víða við í erindi sínu; Ræddi m.a. um Ríkisútvarpið og framtíð stofnunarinnar. Hann talaði um starfshætti alþingis t.d. Náttúrupassa frumvarpið og flækjustigið sem hann taldi það mál vera í hjá alþingi, taldi að slík mál ætti að leysa hratt og vel.
Fundurinn var í umsjón Viðurkenningarnefndar, en í henni eru: Sveinn Hjörtur Hjartarson formaður, Guðmundur Ólafsson og Kristmundur Halldórsson.
Hér má sjá Eldhuga Kópavogs 2015 á milli Helga Sigurðssonar, forseta klúbbsins og Sveins Hjartar Hjartarsonar, formanns viðurkenningarnefndar.
Eftirfarandi er ræða formanns viðurkenningarnefndar við afhendingu Eldhugaverðlauna Rótarýklúbbs Kópavogs árið 2015.
Forseti, góðir félagar.
Viðurkenningarnefnd ákvað að þessu sinni að útnefna Dr. Vilmund Guðnason lækni og prófessor sem Eldhuga Kópavogs árið 2015.
Vilmundur er Kópavogsbúi. Kona hans er Guðrún Nielsen myndhöggvari og eiga þau þrjá uppkomna stráka. Faðir hans var Guðni Vilmundarson múrari og móðir hans Nína Oddsdóttir húsmóðir.
Hann lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1985. Hann lauk doktorsgráðu PhD í erfðafræði frá University College London árið 1995. Hann vann í níu ár sem senior research fellow á centre for Genetics of Cardiovascular Disorder á University College of London School of Medicine. Milli 1998 og 2003 var hann Honorary Senior Lecturer á Center for Cardiovascular Genetics í Royal Free og University College of London og hefur verið Honorary Senior Visiting Fellow á Institute of Public Health and Primary Prevention í University of Cambridge í Englandi síðan 2002.
Vilmundur er prófessor við Háskóla Íslands.
Vilmundur setti á fót rannsóknarstofu Hjartaverndar í erfðafræði. Síðar tók hann við sem forstöðulæknir Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar og einnig forstjóri Hjartaverndar. Vilmundur hefur leitt vísindastarf Hjartaverndar og er m.a. aðalrannsakandi stórs samvinnuverkefnis milli Bandarísku heilbrigðisstofnunarinnar og Hjartaverndar, Öldrunarrannsókn Hjartaverndar (AGES Reykjavík Study). Öldrunarrannsókn Hjartaverndar er rannsókn á einstaklingum sem voru á lífi árið 2002 og höfðu tekið þátt í Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar sem hófst árið 1967. Öldrunarrannsóknin hófst árið 2002 og er ein ítarlegasta og umfangsmesta rannsókn í heiminum á öldrun þar sem upplýsingar yfir allt æviskeið einstaklinganna er tengt saman.
Samhliða þessari rannsókn þá flutti Hjartavernd starfsemi sína í Holtasmára 1 í Kópavogi þar sem meðal annars var sett upp öflug myndgreiningardeild í tengslum við Öldrunarrannsóknina til að rannsaka líffærakerfi einstaklingsins með tillitit til breytinga áður en sjúkdómar gera vart við sig á yfirborði. Hjartavernd hefur sett upp eina öflugustu úrvinnslumiðstöð í Evrópu á myndum í myndgreiningu. Hjartavernd er hér til staðar í næsta hús og er í raun ein af okkar helstu rannsóknarstofnunum á sviði heilbrigðisvísinda.
Gögnum úr öldrunarrannsókninni er stillt saman í ópersónugreinalegan vísindagrunn sem er notaður til úrvinnslu. Nú og næstu áratugi verður unnið úr gögnum tengdum henni af vísindamönnum út um allan heim í samvinnu við vísindamenn Hjartaverndar. Vilmundur hefur leitt öfluga þjálfun og kennslu masters og doktorsnema innan Hjartaverndar, en Rannsóknastöð Hjartaverndar hefur stundum verið kölluð Háskóli í Kópavogi
Vilmundur hefur tekið virkan þátt í að setja á fót alþjóðlega vinnuhópa þar sem leiddar hafa verið saman rannsóknir frá mörgum löndum til að svara spurningum sem erfitt eða ómögulegt er að svara nema í stórum þýðum. Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar er ein af stofnrannsóknum í því sem kallast Emerging Risk Factors Collaboration og Öldrunarrannsókn Hjartaverndar er einn af stofnaðilum í því sem kallast Cohorts for Heart and Aging Reserach in Genomic Epidemiology eða CHARGE. Fjölmargar merkar uppgötvanir hafa komið útúr þessari alþjóðlegu samvinnu.
Úr rannsóknum á Íslendingum hafa fengist mikilvægar lýðheilsuupplýsingar um Íslendinga sem hafa meðal annars nýst heilbrigðiskerfinu. Meðal mikilvægra rannsóknaniðurstaðna eru til dæmis íslenskur áhættureiknir fyrir líkur á hjartaáföllum sem byggja á niðurstöðum úr Reykjavíkurrannsókninni. Unnið er að áhættureikni fyrir fyrirbyggjanleg áföll hjá öldruðum þar sem niðurstöður úr Öldrunarrannsókninni eru nýttar. Áhættuþáttakönnun Hjartaverndar á yngra fólki þar sem Vilmundur er aðalrannsakandi var gerð í þeim tilgangi að útbúa nýjan áhættureikni til að finna æðakölkun hjá einstaklingum sem reiknast í lágri eða miðlungsáhættu en hafa samt dulinn sjúkdóm. Þar fór upplýsingaöflunin meðal annars fram með myndgreiningu. Núna er verið að sannreyna þennan áhættureikni í samvinnu við heilsugæsluna.
Vilmundur hefur verið mjög virkur vísindamaður og eftir hann liggja hátt á fimmta hundrað vísindagreina sem margar hafa birst í virtustu vísindatímaritum heims. Alls eru um 30 000 tilvitnanir í greinar hans og á síðasta ári voru þær 6700 talsins. Flestir vísindamenn ná ekki 1000 tilvitnunum á lífsleiðinni. Hann er sá prófessor við Háskóla Íslands sem hefur birt flestar vísindagreinar í nafni Háskólans. Mikið er vitnað í margar þeirra samkvæmt Web of Science.
Vilmundur er eftirsóttur fyrirlesari á alþjóðavettvangi og hefur m.a. hlotið hin virtu Nikkilä Memorial verðlaun frá Skandinavísku æðakölkunar rannsókna samtökunum (Scandinavian Society for Atherosclerosis Research).
Af framansögðu má ljóst vera að hér fer einn mikilhæfasti vísindamaður landsins og ötullega vinnur að bættri heilsu fólks og þetta starf fer að stórum hluta fram hér í Kópavogi.
Dr. Vilmundur Guðnason er því vel að því kominn að vera útnefndur Eldhugi Kópavogs árið 2015.
Þá var komið að forseta Helga Sigurðssyni að afhenda Eldhuganum verðlaunin sem að þessu sinni er glæsileg glerstytta eftir Ingu Elínu glerlistamann.
Dr. Vilmundur Guðnason þakkaði fyrir þann heiður sem honum og starfi hans er sýndur með þessari útnefningu.
Hann fjallaði lítillega um hvað er verið að gera en stofnunin er að vinna með lífsýnasafn 70-80 þúsund einstaklinga sem er gríðarlega mikilvægt fyrir heilbrigðiskerfi okkar. -Hann sagði að árlegur rekstrarkostnaður væri um 450-500 milljónir. -Aðalstyrktaraðilar eru frá Bandaríkjunum en stofnunin er sjálfaflafjármögnuð nánast að fullu. -Stöðugildi eru nú 45 en hafa mest farið upp í 110.
Vilmundur sagði frá áhættuþáttum kransæðastíflu og heilaæðaskaða og sýndi reiknilíkön til að meta áhættu. -Mikil fjölgun eldri borgara á næstu áratugum mun kalla á markviss vinnubrögð heilbrigðiskerfisins. – Hvað er til ráða spurði Vilmundur. – Það eru forvarnir fyrr á æfinni til að heilbrigði verði sem mest á efri árum, bæði í mataræði og hreyfingu. -Engin spurning um að það skilar sér beint í minni áhættuþáttum og betri lífsgæðum auk sparnaðar í heilbrigðiskerfinu. Hann sagði að verið væri að reyna að finna leið til að greina hverjir þurfa forvarnir fyrr á æfinni þá með t.d. lyfjagjöf og heilbrigðum lífsháttum. -Góð samvinna er við heilsugæsluna um þessi rannsóknarefni og niðurstöðurnar „svínvirka“ sagði Dr. Vilmundur. -Breyting á lífsstíl hefur víðtækust áhrif til að minnka áhættuna. - Kólestrol er stærsti áhættuþátturinn.