Fréttir

4.3.2014

Guðbjörg Kristjánsdóttir útnefnd Eldhugi Kópavogs

Rótarýfundurinn 4. mars var í umsjón Viðurkenninganefndar. Formaður hennar er Þórir Ólafsson. Á fundinum var Guðbjörg Kristjánsdóttir, listfræðingur, tilnefnd Eldhugi Kópavogs 2014 fyrir stórvirki sitt, Íslensku teiknibókina.



Ávarp Þóris Ólafssonar, formanns viðurkenningarnefndar RK.

Forseti, ágætu félagar og gestir,

Á 350 ára afmæli Árna Magnússonar handritasafnara, 13. nóvember sl. var opnuð merk sýning á Gerðarsafni í Kópavogi, að viðstöddum m.a. Danadrottingu, forseta Íslandss, menntamálaráðherra og fjölda fræðimanna á sviði lista og menningarsögu. Tilefnið var opnun sýningar á myndum, ásamt skýringartextum úr nýútgefinni bók eftir Guðbjörgu Kristjánsdóttur listfræðing og safnstjóra Gerðarsafns: ÍSLENSKA TEIKNIBÓKIN.

Verkinu verður best lýst með því að  lesa aðfaraorð Guðrúnar Nordal forstöðumanns stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum:

"Á miðöldum og fram á endurreisnartímann bjuggu listamenn til handbækur með myndefnum sem þeir notuðu við vinnu sína og gengu mann fram af manni. Þessi vinnuplögg eyddust flest og týndust með tímanum og í Evrópu allri er nú aðeins vitað um tæplega fjörutíu slík handrit. Á norðurlöndunum er aðeins til eitt, íslenska teiknibókin. Hún varpar ómetanlegu ljósi á vinnulag teiknara og lýsenda handrita á fjórtándu og fimmtándu öld og er í raun kennslubók teiknarans, rétt eins og Snorra-Edda var rituð sem kennslubók ungra skálda. Segja má að Teiknibókin hafi samskonar gildi fyrir skilning okkar á lýsingum í handritum og Edda Snorra fyrir rannsóknir á kveðskap dróttkvæðanna.

Teiknibókin er ein af merkustu skinnbókunum í safni Árna Magnússonar. Verðmæti hennar birtist ekki  í ytra útliti: brotið er lítið, bókfellið þykkt  og dökkt, blöðin illa skorin, sum skert og önnur götuð, enda var bókin í notkun allt fram á sautjándu öld. Auður hennar er fólginn í einstakri innsýn í myndheim kaþólskunnar, sérkenni  ísilenskrar mynd- og skreytilistar á síðmiðöldum og táknfræði trúarlegra myndverka.

Guðbjörg Kristjánsdóttir listfræðingur hefur um áratugaskeið rannsakað Teiknibókina   og niðurstöður hennar kollvarpa flestu því sem áður hefur verið haldið fram. Hún hefur einangrað ólíka stíla í handritinu og heimfærir þá upp á fjóra teiknara sem voru uppi á árabilinu 1330 – 1500.  Í rannsókn sinni bregður hún ljósi á það hvernig túlkun teiknaranna þróast í tímans rás, bendir á fyrirmyndir þeirra og hliðstæður í öðrum bókum. Með nákvæmri og frumlegri rannsókn á einu handriti bætir Guðbjörg mörgum köflum við menningarfsögu okkar."

Sýningin stóð í tæpa 3 mánuði, fékk mjög góða aðsókn og Guðbjörg var með reglulegar kynningar allan sýningartímann.

Á fundi viðurkenningarnefndar Rótarýklúbbs Kópavogs 9. des sl. var samþykkt einróma að útnefna Guðbjörgu Kristjánsdóttur listfræðing Eldhuga Kópavogs 2014.

Frekari staðfesting á þessu merka verki Guðbjargar fékkst síðan við úthlutun bókmenntaverðlauna ársins á Bessastöðum 30. janúar sl, er Guðbjörg hlaut verðlaunin í flokki fræðibóka.                                               

Ég vil að lokum biðja forsetann okkar, Jón Ögumundson, að koma hér upp ásamt Guðbjörgu til að afhenda áritað glerlistaverk eftir Ingu Elínu til staðfestingar á utnefningu „Eldhuga Kópavogs 2014“.

Eldhugi Kópavogs 2014 með viðurkenninguna á milli Þóris og Jóns

Að lokum var mynd tekin af fundarmönnum með eldhuganum.