Fréttir
  • RK sigursveitin 2013

5.9.2013

Helgi Ólafsson golfmeistari Rótarýklúbbs Kópavogs 2013

Frá árinu 1998 hefur árlegt golfmót innan klúbbsins verið fastur liður í félagsstarfinu. Að þessu sinni var mótið haldið fimmtudaginn 5. september á Leirdalsvelli hjá GKG, en mótið hefur ávallt verið  haldið á þeim velli. Helgi Ólafsson varð golfmeistari Rótarýklúbbs Kópavogs árið 2013. Borgir sigruðu í keppni á milli Rótarýklúbbanna í Kópavogi.

Keppnin um Stefánsbikarinn

Frá árinu 1998 hefur árlegt golfmót innan klúbbsins verið fastur liður í félagsstarfinu. Í leikslok er golfmeistari Rótarýklúbbs Kópavogs krýndur og fær til varðveislu farandbikar, sem Stefán Pálsson gaf klúbbnum.

Mótið í ár var haldið 5. september s.l. og var leikið á Leirdalsvelli (GKG) eins og undanfarin ár. 7 félagar í klúbbnum tóku þátt í mótinu ásamt einum maka. Árangurinn var ekki alveg nógu góður, þrátt fyrir frábært veður, ólíkt því sem oft hefur verið.

Helgi Ólafsson varð sigurvegari með 30 punkta. Guðmundur Ólafsson varð annar með 27 punkta og Hallgrímur Jónasson varð í þriðja sæti með 26 punkta. Þessir þrír skipuðu því 3ja manna sveit Rótarýklúbbs Kópavogs í keppninni við Borgir.

RK sigursveitin 2013

Taldir frá vinstri: Hallgrímur, Helgi og Guðmundur

Golfmót Rótarýklúbbanna í Kópavogi

Þetta var þriðja árið sem RK og Borgir halda sameiginlegt golfmót, sem var bæði hefðbundið innanklúbbsmót og keppni á milli klúbbanna. Þrír efstu í hvorum klúbbi mynda sveit í keppni á milli klúbbanna.

Að þessu sinni mættu 10 félagar úr Rótarýklúbbnum Borgum og 7 félagar úr Rótarýklúbbi Kópavogs. Auk þess mættu 3 makar.

Keppnin var punktakeppni með forgjöf. Þrír efstu í innanklúbbsmótunum mynduðu sveit síns klúbbs.

Frá Rótarýklúbbi Kópavogs: Helgi Ólafsson (30 pkt), Guðmundur Ólafsson (27 pkt.) og Hallgrímur Jónasson (26 pkt), samtals 83 punktar.

Frá Rótarýklúbbnum Borgum: Kristján Hjálmar Ragnarsson (33 pkt), Ágúst Ingi Jónsson (30 pkt)  og Margrét Halldórsdóttir (28 pkt), samtals 91 punktur.

Rótarýklúbburinn Borgir sigraði því nokkuð örugglega með 91 punkti gegn 83 og urðu því sigurvegarar í golfmóti Rótarýklúbba Kópavogs árið 2013.

Borgir sigursveitin 2013

Her eru kampakátir sigurvegarar Borga: (f.v.) Margrét, Kristján og Ágúst Ingi.

Rótarýklúbbur Kópavogs óskar Borgum til hamingju með þennan glæsilega sigur í golfmóti Rótarýklúbbanna í Kópavogi árið 2013.