Fréttir
  • MK viðurkenning des 2012

20.12.2012

Útskriftarhátíð Menntaskólans í Kópavogi

Sunna Harðardóttir hlaut  viðurkenningu frá Rótarýklúbbi Kópavogs fyrir bestan árangur í raungreinum við útskrift stúdenta frá Menntaskólanum í Kópavogi

Fimmtudaginn 20 desember var útskriftarhátíð Menntaskólans í Kópavogi haldin í Digraneskirkju. Við það tækifæri afhenti Eiríkur Líndal, forseti klúbbsins, Sunnu Harðardóttur, nýstúdent, viðurkenningu Rótarýklúbbs Kópavogs fyrir bestan árangur í raungreinum.

Á myndinni má sjá Eirík með Sunnu, en auk viðurkenningarskjalsins afhenti Eiríkur henni kr. 60.000 frá klúbbnum.