Fréttir
  • Golfmót 2012 - sigursveitin

7.9.2012

Rótarýgolfmót í Kópavogi

Frá árinu 1998 hefur árlegt golfmót innan klúbbsins verið fastur liður í félagsstarfinu. Guðmundur Ólafsson varð golfmeistari Rótarýklúbbs Kópavogs árið 2012. Borgir sigruðu í keppni á milli Rótarýklúbbanna í Kópavogi

Keppnin um Stefánsbikarinn

Frá árinu 1998 hefur árlegt golfmót innan klúbbsins verið fastur liður í félagsstarfinu. Í leikslok er golfmeistari Rótarýklúbbs Kópavogs krýndur og fær til varðveislu farandbikar, sem Stefán Pálsson gaf klúbbnum.

Mótið í ár var haldið 6. september s.l. og var leikið á Leirdalsvelli (GKG) eins og undanfarin ár. 7 félagar í klúbbnum tóku þátt í mótinu ásamt einum maka. Árangurinn var frekar dapur, enda veðuraðstæður óhagstæðar, nokkur vindur og talsverð úrkoma, sem gerði kylfingum erfitt fyrir.

Guðmundur Ólafsson og Valur Þórarinsson urðu efstir og jafnir með 26 punkta hvor, en Guðmundur var dæmdur sigurvegari vegna betra skors á seinni 9 holunum. Jóhann Árnason varð í þrðja sæti. Þessir þrír skipuðu því 3ja manna sveit Rótarýklúbbs Kópavogs í keppnnni við Borgir.

RK2012 sigursveitin upplausn góð

Taldir frá vinstri: Valur, Guðmundur og Jóhann


Golfmót Rótarýklúbbanna í Kópavogi

I fyrra héldu RK og Borgir í fyrsta sinn sameiginlegt golfmót, sem var bæði hefðbundið innanklúbbsmót og keppni á milli klúbbanna. Efstu menn í hvorum klúbbi mynduðu sveit í keppni á milli klúbbanna. Þriðja Rótarýklúbbnum í Kópavogi, Þinghóli, var boðið að vera með, en þeir sáu sér ekki fært að vera með þá og heldur ekki núna.

Að þessu sinni mættu 12 félagar úr Rótarýklúbbnum Borgum og 7 félagar úr Rótarýklúbbi Kópavogs. Auk þess mættu 6 makar.

Keppnin var punktakeppni með fullri forgjöf. Þrír efstu í innanklúbbsmótinum mynduðu sveit síns klúbbs.

Frá Rótarýklúbbi Kópavogs: Guðmundur Ólafsson, Valur Þórarinsson og Jóhann Árnason.

Frá Rótrýklúbbnum Borgum: Ágúst Ingi Jónsson, Margrét Halldórsdóttir og Friðgerður Friðgeirsdóttir


Rótarýklúbburinn Borgir sigraði nokkuð örugglega með 88 punktum gegn 73 og urðu því sigurvegarar í golfmóti Rótarýklúbba Kópavogs árið 2012.

Borgir 2012 sigursveitin

Her eru kampakátir sigurvegarar Borga: (f.v.) Friðgerður, Ágúst Ingi og Margrét.


Rótarýklúbbur Kópavogs óskar Borgum til hamingju með þennan glæsilega sigur í golfmóti Rótarýklúbbanna í Kópavogi árið 2012.