Fréttir
  • MK viðurkenning 20des11

21.12.2011

Útskriftarhátíð Menntaskólans í Kópavogi

Rótarýklúbbur Kópavogs veitir viðurkenningu fyrir bestan árangur í raungreinum við útskrift stúdenta frá Menntaskólanum í Kópavogi

Þriðjudaginn 20 desember var útskriftarhátíð Menntaskólans í Kópavogi haldin í Digraneskirkju. Við það tækifæri afhenti Magnús Már Harðarson, forseti klúbbsins, Aroni Inga Ingvasyni, nýstúdent, viðurkenningu Rótarýklúbbs Kópavogs fyrir bestan árangur í raungreinum.

Á myndinni má sjá Magnús Má með Aroni Inga, en auk viðurkenningarskjalsins afhenti Magnús honum kr. 60.000 frá klúbbnum.