Markmið Rótarýklúbbs Kópavogs starfsárið 2010-2011
Samfélagsþjónusta í Kópavogi áberandi
Samfélagsþjónusta í Kópavogi:
Veita viðurkenningu, Eldhugann, fyrir brautryðjandastörf í bæjarfélaginu.
Veita viðurkenningu fyrir fræðandi og velfluttan fyrirlestur í klúbbnum.
Styðja uppbyggingu og rekstur Sunnuhlíðar m.a. með setu í fulltrúaráði Sunnuhlíðar.
Veita nýstúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi viðurkenningu fyrir góðan námsárangur.
Alþjóðaþjónusta:
Árlegt framlag í rótarýsjóðinn verði 3000 $
Vera tilbúinn til þess að taka þátt í alþjóðlegu verkefni, sem fellur að hugsjónum hreyfingarinnar, ef eftir því verður leitað eða ef upp kemur vilji til þess innan klúbbsins.
Klúbbþjónusta:
Fjölga félögum um 10, með sérstakari áherslu á að auka hlut kvenna.
Stuðla að aukinni fundarsókn.
Halda 46 vel undirbúna félagsfundi á starfsárinu, með dyggri aðstoð kjörinna nefnda.
Koma á samskiptum á milli kjörinna nefnda á netinu.
Færa félaga sem býður hópnum, af einhverju tilefni, í móttöku gjöf í nafni klúbbsins.
Geta þeirra 3ja mín ræðumanna sem halda sig innan tímarammans í ársskýrslu klúbbsins.
Hafa á heimasíðu klúbbsins allar nauðsynlegar upplýsingar um starfsemina.
Styðja útgáfu á 50 ára sögu klúbbsins.