Fréttir

24.7.2009

Golfmót Rótarýklúbbs Kópavogs á Urriðakotsvelli

Hefst fimmtudaginn 10. september nk. kl. 12.30, stundvíslega!

Golfmót Rótarýklúbbs Kópavogs þetta ár verður á Urriðakotsvelli í Garðabæ (Golfklúbburinn Oddur) fimmtudaginn 10. september nk. og er mæting kl. 12.30 en fyrsti rástími er kl. 13.00. Vallargjald er 2.000 krónur auk einhvers smákostnaðar að auki!

Allir golfarar klúbbsins er hvattir til að taka þátt í mótinu þennan dag og eiga þar með von um að verða golfmeistarar klúbbsins. Listi til að skrá þátttöku verður látinn ganga á fundum eftir sumarleyfi klúbbsins, en fyrsti fundur eftir sumarleyfi er 11. ágúst nk.