Fréttir

16.9.2014

Endurmenntun HÍ 30 ára

15.september 2014

Gestur fundarins var Thelma Jónsdóttir sem hefur umsjón með kynningar- og markaðsmálum hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands / EHÍ. Hún sagði frá farsælu starfi EHÍ síðustu ár en stofnunin fagnar nú 30 ára afmæli sínu. Fram kom að árlega sækja um 7 þúsund einstaklingar námskeið hjá þeim og fjöldi námskeiða sem eru í boði á hverju ári eru um 400 talsins. Í erindi sínu lagði Thelma áherslu á að endurmenntun væri fyrir alla og námskeiðin væru öllum opin. Erindi Thelmu var fróðlegt og upplýsandi.