Fréttir

13.11.2013

Starfsgreinaerindi Ásmundar og Sólveigar

Ásmundur og Sólveig, starfsgreinaerindiÁ fundi 11. nóvember fluttu tveir félagar í Görðum  starfsgreinaerindi. Þau voru ólík en bæði skemmtileg og veittu innsýn í líf og starf þeirra sem fluttu:

Sólveig Hjaltadóttir flutti starfsgreinaerindi um starf sitt sem stjórnanda hjá Tryggingasstofnun ríkisins. Hún kynnti lauslega starfsemina en sagði svo meira frá starfi hennar sjálfrar sem stjórnanda.

Ásmundur Stefánsson leit yfir starfsferil sinn en hann er nú hættur á almennum vinnumarkaði. Hann hefur sinnt ýmsum störfum sem tengjast efnahags- og fjármálum en sagði mikla breytingu á venjubundnum degi eftir að hann hætti störfum.