Fréttir

2.7.2013

Stjórnarskiptafundur

Ný stjórn í Rkl. Görðum

Ný stjórn í Rkl. Görðum tók við á fundi mánudaginn 1. júlí 2013.

Stjórnin 2012-2013Bjarni Jónasson, forseti Rkl. Görðum, flutti skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2012-2013. Stjórnin hafði tekið til starfa 2. júlí 2012 og voru auk Bjarna í stjórninni, Sigrún Gísladóttir, viðtakandi forseti, Guðmundur H. Einarsson, ritari, Margrét Björk Svavarsdóttir, gjaldkeri, Heimir Erlingsson, stallari og Guðbjörg Alfreðsdóttir, fráfarandi forseti.

Ásgeir Örn Valgarðsson, matreiðslumaðurBjarni Jónasson, forseti og Margrét Björk Svavarsdóttir, gjaldkeri, færðu Ásgeiri Erni Valgarðssyni, matreiðslumanni frá Pottinum og pönnunni, gjöf frá klúbbnum og þökkuðu honum góða þjónustu við félaga klúbbsins. Ásgeir Örn hefur undanfarin ár séð um að matreiða sérlega góðan mat á fundum félagsins.

Stjórn 2013-2014Ný stjórn tók við á fundinum og er hún svo skipuð: Sigrún Gísladóttir, forseti, Eiríkur Kristján Þorbjörnsson, viðtakandi forseti, Ragnar Önundarson, Arnþrúður Jónsdóttir og Ólafur Reimar Gunnarsson.