Fréttir

25.2.2013

Starfsgreinaerindi

Ein af skyldum Rótarýfélaga er að fræða aðra félaga um starfsgrein sína og stuðla þannig að aukinni þekkingu á ólíkum starfsgreinum. Á fundi klúbbsins í dag voru flutt tvö starfsgreinaerindi. Unnur Valborg Hilmarsdóttir stjórnendaþjálfari hjá Vendum sagði frá störfum sínum sem stjórnendaþjálfari (executive coach) og Guðmundur H. Einarsson ritari klúbbsins sagði frá störfum sínum sem framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis. Þriggja mínútna erindið flutti Össur Stefánsson.