Fréttir

10.12.2012

Jóna Hrönn Bolladóttir í heimsókn

Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur Garðasóknar

Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Garðaprestakalli var gestur fundar Rkl. Görðum 3. desember.  Kynnti hún nýja bók sem hún hefur skrifað ásamt Guðfinnu Eydal og Önnu Ingólfsdóttur. Ber bókin heitið ,,Makalaust líf“  og fjallar um sorg og sorgarviðbrögð.  Þetta er viðtalsbók við fimm einstaklinga sem eiga það sameiginlegt að hafa misst maka sína.  Jóna Hrönn las m.a. stuttan kafla um bók sinni.