Fréttir

17.9.2012

Framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands

Páll Guðmundsson

Á fuPáll Guðmundssonndi klúbbsins 17. september fengum við í heimsókn Pál Guðmundsson framkvæmdastjóra Ferðafélags Íslands. Í erindi hans kom m.a. fram að  félagsmenn nú eru um 8.000 og er stefnt að fjölgun í sem næst 10.000.  Fór hann yfir nokkur atriði í þróunarsögu félagsins sem leggur nú megin áherslur á gönguferðir og rekstur fjallaskála og sæluhúsa. Sýndi myndir af hressu göngufólki sem af þeim að dæma virðist ætíð ferðast í góðu veðri ! Að lokum færði Páll elstu og yngstu félögum rit frá Ferðafélagi Íslands að gjöf.