Fréttir

17.10.2011

Móttaka hjá Landsvirkjun

Fundur Rótarýklúbbsins Görðum var að þessu sinni haldinn síðdegis í húsakynnum Landsvirkjunar við Háaleitisbraut í Reykjavík. Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar tók á móti hópnum.  Í kynningu sinni fór Hörður fór yfir stefnu Landsvirkjunar og þá framtíðarsýn sem hann sér fyrir sér á íslenskum orkumarkaði til u.þ.b. ársins 2025. Að lokum þakkaði Guðbjörg forseti  Herði Arnarsyni höfðinglega móttökur.