Fréttir
  • mk3

26.1.2013

Borgir veita nýsveini í matreiðslu við MK viðurkenningu

Rótarýklúbburinn Borgir sinnir samfélagsverkefnum og er eitt þeirra að veita verðlaun fyrir góðan árangur í sérgreinum verknáms á lokaprófi frá Hótel- og matvælaskóla MK.

Við útskrift frá Menntaskólanum í Kópavogi í desember 2012 var nýsveini í matreiðslu, Maríönnu Sigurbjargardóttur veitt viðurkenning fyrir góðan námsárangur í sérgreinum verknáms á lokaprófi frá Hótel- og matvælaskólanum í Menntaskólanum í Kópavogi, haustið 2012. Á meðfylgjandi mynd er ritari Rótarýklúbbsins Borga, Bjarki Sveinbjörnsson með verðlaunahafanum.

Í þakkarbréfi skólameistara MK til klúbbsins segir m.a: mk1

Auka þarf vægi verknáms í íslenskum framhaldsskólum og mikilvægt er að hvetja þá nemendur til dáða sem vel standa sig. Rótarýklúbburinn Borgir hefur lagt sitt af mörkum til hvatningar í verknámi með glæsilegri styrkveitingu. Þá sýnir klúbburinn Menntaskólanum í Kópavogi virðingu og hlýhug með þessu framlagi. Rótarýfélagar í Rótarýklúbbnum Borgum hafið heila þökk fyrir. Margrét Friðriksdóttir skólameistari“.mk2