Fréttir

24.9.2012

Heimsókn umdæmisstjóra

Kristján Haraldsson umdæmisstjóri 2012-2013 ásamt konu sinni Halldóru Magnúsdóttur gestur okkar 21. september

Umdæmisstj og forsetiUndæmisstj 09.2012Saga Rótarý

Við fögnuðum heimsókn umdæmisstjóra og konu hans á fundi s.l föstudag 21. september. Af því tilefni buðu all nokkrir félagar mökum sínum með á fundinn. Umdæmisstjóri ræddi málefni Rótarý hreyfingarinnar bæði einstakra klúbba,  umdæmisins og alþjóðahreyfingarinnar. Var erindi hans sérlega áhugavert og gerður góður rómur að máli hans. Að loknum fundi fóru þau umdæmissstj´ra hjónin ásamt stjórn og nokkrum félögum í Botnsreit þar sem umdæmisstjóri gróðursetti tré eins og fastur siður er í árlegum heimsóknum umdæmisstjóranna.