Fréttir
  • Almar Grímsson

11.4.2012

Almar Grímsson gestur fundarins  30.03.2012

Almar Grímsson frv. forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga og félagi í Rkl Hafnafjarðar var gestur fundar í klúbbnum 30. mars 2012.

Almar greindi frá heimsóknum nokkurra íslenskra rótarýklúbba til á slóðir íslenskra landnema í Vesturheimi. Hann hvatti fundarmenn til að hugleiða ferð vestur og nefndi að vel gæti farið á sameiginleg ferð rótarýklúbba á Norður og Austurlandi.

Hann minnti á að flestir íslenskra landnema fóru einmitt frá þessum svæðum og því beinast heimsóknir Vestur Íslendinga til landsins einkum hingað norður og á Austurland.