Fréttir
  • Friðarstyrkir Rótarý

12.4.2018

Styrkir til tveggja ára háskólanáms í boði

Alþjóðlegir  friðarstyrkir Rótarýhreyfingarinnar

Rótarýsjóðurinn mun veita allt að 50 styrki til tveggja ára meistaranáms skólaárin 2019-2021. Styrkirnir verða veittir til náms og rannsókna, sem tengjast alþjóðasamstarfi og eflingu friðar í heiminum og eru ætlaðir fólki sem þegar hefur reynslu af alþjóðastarfi auk þess að hafa lokið fyrstu háskólagráðu.

Styrkirnir, sem eiga að standa undir tveggja ára námskostnaði, eru alþjóðlegir samkeppnisstyrkir. Umsækjendur skulu að loknu háskólaprófi hafa aflað sér umtalsverðrar reynslu af störfum við mannúðarmál innan lands eða utan. Rótarýhreyfingin á Íslandi getur mælt með umsókn með hliðsjón af viðtali og könnun á námsferli og störfum. Makar, afkomendur og makar afkomenda lifandi Rótarýfélaga geta ekki sótt um styrkinn. Ellefu Íslendingar hafa þegar hlotið friðarstyrki frá því þeir voru fyrst veittir árið 2002.

Í þessu skyni hefur Rótarýsjóðurinn komið á samvinnu við sex virta háskóla víða um heim: 

  • Duke University and University of North Carolina at Chapel Hill,USA 
  • International Christian University, Tokyo, Japan   
  • University of Bradford, West Yorkshire, England 
  • University of Queensland, Brisbane, Australia 
  • Uppsala University,Uppsala, Sweden
  • Chulalongkorn University, Bangkok, Thailand 
Nánari upplýsingar um námið, háskólana, umsóknarferli- og skilmála er að finna hér.

Almennar upplýsingar um styrkina og hverjir hafa hlotið þá hér má finna hér. Nánari upplýsingar má fá í síma 568 2233 eða 543 9216.
Umsækjendur eru beðnir kynna sér ítarlega reglur sjóðsins og fylla út umsóknareyðublað hér.

Umsóknarfrestur er til 31. maí 2018. 


Applying for the Rotary Peace Fellowship: Tips from Current Fellows from Rotary Training on Vimeo.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning