Fréttir
  • Friðarþing skáta 3

6.2.2015

Alþjóðlegir friðarstyrkir Rótarý 2015-2017

Umsóknarfrestur til 15. mars

Rótarýsjóðurinn, Rotary Foundation, sem rekinn er af Alþjóða Rótarýhreyfingunni, mun veita allt að 50 styrki til tveggja ára meistaranáms skólaárin 2016-2018. Styrkirnir verða veittir til náms og rannsókna, sem tengjast alþjóðasamstarfi og eflingu friðar í heiminum og eru ætlaðir fólki sem þegar hefur reynslu af alþjóðastarfi auk þess að hafa lokið fyrstu háskólagráðu.

Styrkirnir, sem eiga að standa undir tveggja ára námskostnaði, eru alþjóðlegir samkeppnisstyrkir. Rótarý á Íslandi má senda eina umsókn. Val íslenska umsækjandans fer fram eftir ítarleg viðtöl og könnun á námsferli og störfum.

10 Íslendingar hafa fengið styrk - til tveggja ára háskólanáms!

Rótarýsjóðurinn hefur komið á samvinnu við fimm virta háskóla: 
•Duke University and University of North Carolina at Chapel Hill,USA 
•International Christian University, Tokyo, Japan 
•University of Bradford, West Yorkshire, England 
•University of Queensland, Brisbane, Australia 
•Uppsala University,Uppsala, Sweden

Makar, afkomendur og makar afkomenda lifandi Rótarýfélaga geta ekki sótt um styrkinn. Tíu Íslendingar hafa hlotið friðarstyrki frá því þeir voru fyrst veittir árið 2002.

Nánari upplýsingar um námið, háskólana, umsóknarskilmála og umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu http://www.rotary.org/myrotary/en/get-involved/exchange-ideas/peace-fellowships 
Einnig má nálgast upplýsingar á heimasíðu Rótarý á Íslandi:www.rotary.is/umrotary/verkefni/namsstyrkir/fridarstyrkir og síma 568 2233 eða í síma 543 9216.

Þeir sem hafa hug á að sækja um styrk eru beðnir um að fylla út, prenta og senda umsóknareyðublað ásamt ítarlegu æviágripi og lýsingu á markmiði með framhaldsnámi fyrir 16. mars til: 
Rótarý á Íslandi, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík, 
merkt „Friðarstyrkur“.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning