Fréttir

5.9.2014

Auglýst eftir styrkumsóknum Tónlistarsjóðs Rótarý

Umsóknarfrestur er til 8. október

Tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi auglýsir eftir styrkumsóknum. Sjóðurinn veitir ungu fólki, sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar og stefna á að gera tónlist að meginstarfi, viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms.

Styrkurinn verður veittur í janúar 2015 og er að upphæð kr. 800.000.

Umsóknarfrestur er til 8. október n.k.

Umsóknum skal skilað til skrifstofu Rótarý á Íslandi, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. rotary@rotary.is.

Sjá nánar um Tónlistarsjóð Rótarý hér


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning